Friday, July 07, 2006

Alltaf líf í kringum mig.

Hæ hæ.
Það er oft sagt um mig að það sé alltaf mikið líf í kringum mig. Það er alltaf eitthvað nýtt að ske. Núna er ég búin að vera á fundum með fjárfestum sem vilja kaupa skip og það fleiri en eitt. Þetta er mjög spennandi og kom óvænt upp í hendurnar hjá mér. Ég veit ekki hvað verður, en samt mjög mikil áskorun. Annas er bara litið að frétta styttist í fríið hjá mér. Ég er að fara til Portugal, þar sem mér er boðið í festival í Lissabon og svo verður farið í golf, og svo slakað á á í Albufera á glæsi hóteli en sá draumur. mig er farið að hlakka mjög mikið til. Maður er orðin svo þreittur og slæptur eftir mjög mikla vinnu. Og alltaf bætir maður á sig vinnu. Við bíðum eftir littla kallinum og vonum að hann komi fyrir brottför okkar en verði ekki eins og síðast að hún eigi þegar við verðum úti he he he .... þá verður Sirrý ómöguleg hún er svo mikil barnakerling. meiri fréttir síðar.

2 comments:

Anonymous said...

Ertu búinn að gleyma hvað ég heiti? Uss.. það er allt of mikið að gera hjá þér :o)

Anonymous said...

Frábærar fréttir. Vonandi gengur þetta upp. Heyri í þér seinna.

Kveðja, Stjáni Guð.